Sigrn Bj?rk 的个人资料Til hamingju Ísland照片日志列表 工具 帮助

Sigurard?ttir Sigrn Bj?rk

职业
Ég heiti Sigrún Björk og er 23 ára Akureyrarmær. Ég er á 1. ári í HA og er að vinna hjá Og Vodafone.
4月18日

Back in business....

But not here! Já ég hef ákveðið að byrja að blogga aftur, stór og erfið ákvörðun en ég lét mig hafa það.
Færði mig aftur á gamla góða staðinn minn
endilega kíkið á mig
 
3月12日

Looser...

Ég hef hreinlega enga afsökun fyrir því að vera ömurlegur bloggari og ég ætla ekki að reyna að ljúga neinu að ykkur, bara hreinlega nenni þessu ekki í bili!! Hef ekkert um að tala nema skólann og Bootcamp svo að ég kveð að sinni. Hendi kannski inn myndum af og til en læt ykkur þá vita
2月21日

Jamm ég er sæt eins og hún

Jæja var að koma heim úr bíó í fyrsta skipti í langan tíma. Ég og Alma skelltum okkur í bíó þar sem strákarnir ætluðu að horfa á bolta í allt kvöld og við nennum því víst ekki. Fórum fyrst rosa rómó að borða í Ak-inn  og svo fórum við á Derailed. Hún kom mér ekkert smá á óvart, bjóst ekki við neinu og svo var þetta bara fínasta spennumynd. Hefði sennilega bara nagað allar neglurnar af ef ég hefði tímt því... Langar líka að segja ykkur að ég var edrú alla helgina  aha og ég er sko ekki að plata. Það fór ekki sopi af áfengi inn fyrir mínar varir.... eða ok sorry eitt rauðvínsglas með dinnernum hjá m & p. Ég meina það var nú einu sinni konudagurinn og svo er víst sagt að eitt rauðvínsglas á dag komi skapinu í lag, eða eitthvað solleiðis!! Fékk líka blóm, ótrúlegt en satt og ég er bara mjög stolt af manninum mínum fyrir það

 

Sigrún bekkjarsys rekst einhvernveginn alltaf á eitthvað skemmitlegt á netinu og þessi síða http://www.myheritage.com/ er alveg mega, þetta er svona face recognition. Maður setur inn mynd af sér, ja eða bara einhverjum sem mann langar að skoða og þá skannar eitthvað forrit andlitið og segir manni hverjum maður er líkur og hversu mikið... rosa stuð!! Er sko búin að prufa fullt af fólki!

 

Ég er allavega alveg sátt við útkomuna mína, ég setti inn myndina af mér sem er hérna til vinstri og ég var líkust Shakiru eða 73%   og það er nú ekki slæmt enda er hún foooxy!! Á eftir henni komu svo ekkert síðri kellur

 Candice Bergen 72%  Þrusu foxy old lady, þá veit ég hvernig ég verð gömul

Rachel Bilson 71%  Þið O.C. aðdáendur ættuð nú að kannast við hana!!

Marcia Cross  71% (Bree í Desperate) hehe

Naomi Watts 71%  Lék t.d. í King Kong

Queen Rania 70% Það er ekki leiðum að líkjast, 31 árs drottning í múslimaríkinu Jordan, en hún er hörkudugleg og berst mikið fyrir t.d. kvenréttindum í sínu landi.

Scarlett Johansson 70% u all know who that is…..

Juliette Binoche 68% einhver fancy france actress

Ashley Olsen 68% t.d. New York minute

Kelly Clarkson 67% don’t have to tell u

 

Have fun krúttin mín

2月17日

Forfallin...

Þá er þriðji dagurinn í BootCamp búinn og það er óhætt að segja að ég sé aðeins þreytt í líkamanum en það er bara af hinu góða. Trúi varla að ég hafi meikað að vakna kl 5:45 til að púla en þetta get ég!
Við erum aldrei búin að gera það sama en við gerum sko hell nóg af magaæfingum og armbeygjum. Það er líka rosa gaman hvað maður getur pískað sjálfum sér áfram þegar maður er sannfærður um að eiga ekkert eftir. Eins og í morgun þá byrjaði ég inni með helming af hópnum og þar vorum við að gera alls konar æfingar og það nóg af þeim, var farið að leka af mér og þá var bara að dríbba sig út. Við byrjuðum á að skríða þrjár langar svona "hermannaskriðsæfingar" og við erum að tala um að það þurfti sko enga gröfu til að moka Átaksplanið þennan morgun því að við gerðum það nokkuð vel  Maður er svei mér þá að gera hið óhugsandi og kemur sér stöðugt á óvart hvað maður virkilega getur pínt sig endalaust. T.d. var ég alveg búin á því svona þrisvar sinnum í morgun en alltaf bætti hann við einhverjum æfingum og alltaf náði ég að pína mig áfram og við öll. Allir rosa duglegir og það sem er líka gaman er að þetta er að sjálfögðu keppni en þetta er ekki keppni á milli okkar sem erum í þessu. Maður er algjörlega að keppa við sjálfan sig um að koma sér í gott form og samt snýst þetta allt um hópvinnu, því lengur sem ég er að gera "mitt" því lengur þurfa hinir að bíða, og það er ekki eins og vð fáum að sitja á rassinum meðan við bíðum. Ef þið lesið bloggið mitt þá ættuð þið að vita núna hvað hvíldarstaða er
Annars er ég ekki búin að gera mikið undanfarna daga því lets face it ég hálf neyðist nú til að fara á skikkanlegum tíma í bólið til að vakna svona snemma, var t.d. að verða nuts í gær því ég bara gat ekki sofnað og var ekki enn sofnuð kl 2!!! Pínu erfitt að vakna í morgun! Ég er hreinlega bara svo uppveðruð af þessu BootCamp að ég er líklega eftir að láta móðann mása um þetta næstu daga.... vona bara að einhver nenni að lesa, gott fyrir ykkur sem eruð að spá í að drífa ykkur næst, Gudda, Þóra???  Ja hver það verður veit nú enginn en það verður spennandi að sjá.....
En jæja nú ætla ég að fylgjast með í tíma, Sigrún sveitta kveður....
2月13日

Geðveikin byrjuð!

Vill byrja á að óska Krummanum mínum til hamingju með 25 ára afmælisdaginn... Hann er orðinn svo stór kallinn
Já nasistabúðirnar byrjuðu í dag með pompi og prakt! Vaknaði kl 5:45!!! Ég er ekki að ljúgja! Var búin að taka mig til, skellti mér bara í fötin og niður í Átak. Það fengu allir sem áttu að byrja í dag SMS í gær um það að þessi tími væri bara inni. Já það er óhætt að segja að geðveikin sé bara strax byrjuð og okkur var sko ekkert hlíft svona í fysrta tímanum. Byrjuðum á upphitun og svo voru armbeygjur og magaæfingar til skiptis. Þá var okkur kennd hvíldarstaða 1 og 2. 1 er semsagt armbeygjustaða á tánum og með beinar hendur.. þannig vorum við svo látin bíða í mínotu og það oftar en einu sinni. Hvíldarstaða 2 er líka eins og armbeygjustaða nema bara á olnbogunum og þannig fengum við líka að kveljast svo mínotum skipti. Svo var okkur skipt í tvo hópa, annar raðaði sér hringinn í salnum og voru að gera hnébeygjur eins og geðsjúklingar og hvíldarstaða 3 er semsagt setustaða upp við vegg í 90 gráðum og svo var hinn hópurinn i miðjunni að gera endalusar magaæfingar. Svona er þetta og svo þegar mann er búinn með sitt þá bíður maður í þesari svokölluðu "hvíldarstöðu" sem er ekki rassgat hvíldar neitt því hún er haevy erfið. En eftir smá tíma á þetta víst bara að vera geggjað auðvelt. Ég svitnaði vel og tók vel á því, verð samt að segja að ég bjóst einhvernveginn við meiri geðveiki en á sama tíma efast ég engan veginn um það að við fáum að kenna á því næstu daga og vikur!!!! En meira um bootcamp seinna.
Ætla að chilla og svo ætla ég með kallinn út að borða og svona, verð nú að vera góð við hann á afmælisdaginn 
 
 
 
第 1 张,共 43 张